Fólksbíla og jeppaverkstæði okkar er vel tækjum búið og annast allar þjónustuskoðanir og almennar viðgerðir en auk þess eru framkvæmdar véla- gírkassa- og sjálfskiptingarviðgerðir. Verkstæðið er einnig búið fullkomnum hjólastillingarbúnaði ásamt búnaði til hemla- og demparaprufana. Við hvetjum þig til að koma með bílinn þinn reglulega í viðhaldsskoðun til okkar því þannig þjónar hann þér best. Einnig má benda á að viðhald skiptir miklu máli varðandi endursöluverð á bílnum.
Þegar þú kemur með bílinn þinn stendur þér til boða bílaleigubíll á mjög hagstæðum kjörum meðan við þjónustum bílinn þinn. Fyrir þá sem eru mikið á ferðinni er þetta frábært kostur - kynntu þér verð og úrval bílaleigubílann þegar þú pantar tíma hjá okkur.
Reglulegt viðhald er nauðsynlegt til að viðhalda góðu ástandi og mengunar- og vélareiginleikum bílsins þíns. Eigandinn ber ábyrgð á því að bæði almennu og áskildu viðhaldi sé sinnt reglulega eins og mælt er fyrir um.
1. Almennt viðhald felur í sér þá þætti sem skoða þarf við daglegan rekstur ökutækisins. Þeir eru grundvallaratriði í því að ökutækið starfi áfram rétt og eðlilega. Slíkar skoðanir getur þú sjálfur, tæknimaður eða viðurkenndur þjónustuaðili séð um.
2. Áskilið viðhald er nauðsynlegt að framkvæma til að viðhalda ábyrgð framleiðanda bifreiðarinnar. Áskilið viðhald skal framkvæmt af viðurkenndum þjónustuaðila bílsins.











